Í dag vorum við að vinna verkefni í skólanum hjá Önnu Lísu og við fórum líka í leik þar sem við vorum að veiða stafi. Í sögu stund lærði ég svo einn mjög fyndinn brandara en hann er svona: Einu sinni var kona sem átti hund sem hét Nýjasta tíska. Eitt sinn var konan í sturtu og þá slapp Nýjasta tíska út og konana hljóp alsber á eftir honum og kallaði "Nýjasta tíska, Nýjasta tíska". Þá hlupu allir í hverfinu alsberir út því allir héldu að það væri nýjasta tískan :) Guðjón.
Monday, November 04, 2002
Sunday, November 03, 2002
Í dag er einungis um einn mánuður þar til Harpa byrjar í prófum og því mun hún eflaust lítið vera heima á næstunni. Í gær ákváðum við því að gefa okkur tíma til að fara út að borða á Apótekið og komum Guðjóni í pössun á meðan hjá Davíð frænda sínum. Þegar við vorum á leiðinni niður í bæ lentum við á eftir dauðadrukknum ökumanni á Miklubrautinni (nánar tiltekið á móts við Kjarvalstaði) sem sveigði upp á gangstéttir og smaug fram hjá bílum. Við hringdum auðvitað beint í lögregluna og hún lét okkur elta bílinn til að fylgjast með hvert hann færi og á meðan sendi hún lögreglubíl til að elta hann uppi eftir að við lýstum nákvæmlega fyrir lögreglunni hvar hann fór. Lögrelgan náði svo að stöðva þennan vel svo blauta ökumann á Bræðraborgastíg stuttu síðar eftir að hann hafði bæði farið yfir á rauðu ljósi og keyrt um 12 sinnum uppá umferðaeyjur og rétt náð að sveigja fram hjá öðrum bílum í umferðinni.
